Hér má sjá þau Þórarinn, Höskuld, Óðinn Þór, Aron Inga, Sylvíu, Helgu Maríu & Rózu á góðri stundu á Sardiníu
Í september hélt sjö manna hópur nemenda ásamt tveimur starfsmönnum VA til Sardiníu þar sem þau heimsóttu ITE Pietro Martini, viðskipta- og tækniskóla í Cagliari sem telur um 1.500 nemendur. Heimsóknin var hluti af samstarfsverkefni sem hófst fyrr á árinu þegar við tókum á móti nemendum frá Sardiníu hér í VA á vorönn og áttum með þeim góða viku. Þetta voru þau Þórarinn, Höskuldur, Aron Ingi, Óðinn Þór, Sylvía, Roza og Helga María sem fóru ásamt þeim Karítas Ósk og Pjetri St. Arasyni.
Ítalirnir tóku vel á móti hópnum og settu saman fjölbreytta dagskrá sem innihélt meðal annars skoðunarferð um Cagliari, heimsókn á Devils Saddle og Poetto-ströndina auk ferðar til Villasimius. Þá gafst einnig gott tækifæri til að kynnast menningu og mannlífi á Sardiníu. Það er óhætt að segja að hvítu strendurnar og fallegt umhverfið hafi vakið mikla lukku hjá hópnum enda lék veðrið við þau í heimsókninni.
Nú í byrjun október hélt síðan 5 manna hópur nemenda til Celje í Slóveníu þar sem þau heimsækja Gimnazija Celje. Heimsóknin er hluti af sambærilegu samstarfsverkefni og Sardiníuverkefnið, þar sem slóvenskir nemendur munu endurgjalda heimsóknina og koma í heimsókn í VA á vorönn 2027. Þá munu þeir dvelja hjá nemendum okkar sem taka þátt í verkefninu. Þátttakendur í þessu verkefni eru þær Tinna Rut, Helena, Regína, Gunnhildur og Maryam.
Heimsóknin til Slóveníu stendur yfir dagana 4.–10. október og er dagskráin fjölbreytt. Hópurinn mun meðal annars heimsækja Ljubljana, höfuðborg Slóveníu, skoða Bled-vatn og kynnast skólastarfi og menningu á svæðinu.
Samhliða nemendahópnum sem nú er í Slóveníu eru þeir Tryggvi og Mikael í heimsókn hjá nýjum samstarfsskóla VA, Šolski Center Celje – MIC. Þar gefst þeim tækifæri til að kynna sér starfsemi skólans, einkum verknám, og leggja grunn að áframhaldandi samstarfi milli skólanna. Þau Sigrún Eva og Birgir eru hópnum innan handar í þessari ferð.
Alþjóðlegt samstarf gefur nemendum VA einstakt tækifæri til að kynnast nýjum löndum, menningu og fólki ásamt því að takast á við nýjar aðstæður og spreyta sig á erlendu tungumáli. Samstarfið skapar jafnframt dýrmæt tengsl milli skóla og gefur okkur tækifæri til að bera saman skólastarf og læra hvert af öðru.
Við hlökkum til að taka á móti slóvensku nemendunum á vorönn 2027 og halda áfram að efla alþjóðlegt samstarf VA.