Jafnréttisdagar

Í síðustu viku stóð jafnréttisnefnd VA fyrir viðburðum í tengslum við jafnréttisdaga sem hafa skotið styrkum rótum á skóladagatali hvers árs.

Á mánudag fengu nemendur fræðslu frá Theodór Francis Birgissyni um samskipti og mikilvægi þeirra. Á miðvikudag var nemendum og starfsfólki boðið í bíó í Valhöll á Eskifirði þar sem sýnd var myndin Ladies first með Sasha Baron Cohen. Myndin fjallar um karlrembu sem vaknar upp eftir höfuðhögg og þá hafa kynhlutverkin breyst.

Síðastliðna viku voru nemendur og starfsfólk einnig hvött til þess að svara spurningunni: Hvað hefur jafnrétti gert fyrir mig?

Kom fjöldi svara við spurningunni og má sjá nokkur dæmi hér í myndunum fyrir neðan.