Upphaflega ætlaði Hrefna Ágústa að skrifa bók um loftslagsbreytingar og áhrif þess á náttúru en ákvað á endanum að sleppa því að vinna að skriflegu verkefni og prjónaði jöklapeysu eftir fyrirmynd af Eyjafjallajökli þar sem hver litur hefur sitt tákn.
Nemendur á stúdentsbrautum vinna að lokaverkefni á síðustu önn sinni við skólann í áfanganum Lokaverkefni og hér má sjá nokkur verkefni sem unnin hafa verið við Verkmenntaskóla Austurlands í gegnum árin. Eins og sjá má eru verkefnin eins ólík og þau eru mörg en nemendum er frjálst að velja sér verkefni til að vinna að með það að meginmarkmiði að stuðla að sjálfstæðum og skapandi vinnubrögðum. Í lok áfangans skila nemendur alla jafna að sér lokaafurð sem og skýrslu um vinnuferlið og ítarlegri upplýsingar um lokaafurðina.
Þann 11. maí s.l. fór fram kynning á lokaverkefnunum í sal VA þar sem fjölskyldum og vinum útskriftarnema var boðið á ásamt öðrum áhugasömum. Líkt og áður mátti sjá verkefni úr ólíkum áttum.
Það var Asia sem sá um utanumhald áfangans þessa önnina, en að auki fá nemendur leiðbeinendur með sér við útfærslu verkefnanna sem þeir útvega sér sjálfir.
Borðspil eftir Alexander Hróa Sigurjónsson
Eskifjarðarhús - myndabók eftir Baldur Einar Jónsson
Fúnir fiðrildavængir – ljóðabók eftir Jóhönnu Dagrúnu Daðadóttur
Geðheilbrigði og geðraskanir barna og unglinga – Heimasíða eftir Jónínu Valtingojer
Lærdómur í leikjum – kennsluhefti um leiki sem henta í kennslu eftir Anton Bjarna Vilhjálmsson
Prjónuð peysa eftir Hrefnu Ágústu Marinósdóttur
Rafgas byssa eftir Frey Zoega
Súrdeigsuppskriftabók eftir Hafrúnu Kötlu Aradóttur
Tímarit um unglingastarf Slysavarnarfélagsins Landsbjargar eftir Amelíu Rán Ægisdóttur
Hlekkur á verkefnin ásamt ítarlegri upplýsingum um þau mun verða aðgengilegur hér á síðu lokaverkefna skólans á næstu dögum en hér má sjá nokkrar myndir frá kynningardeginum.