Námsmatssýning 20. desember 11:30-12:30

Þriðjudaginn 20. desember er námsmatssýning í skólanum. Einkunnir birtast nemendum í Innu kl. 8:15 og námsmatssýningin fer fram á milli kl. 11:30 og 12:30 í nýja matsalnum. Á námsmatssýningunni eiga nemendur þess kost að skoða námsmat sitt í viðurvist kennara og fá útskýringar.

Við hvetjum alla nemendur til þess að láta sjá sig.