Umsóknir um jöfnunarstyrk

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk fyrir námsárið 2025-2026 þann 1. og eru nemendur hvattir til að sækja um strax fyrir báðar annir námsársins. Jöfnunarstyrkur er námsstyrkur fyrir nemendur sem búa og stunda nám fjarri lögheimili og fjölskyldu sinni.

Umsóknarfrestur haustannar er til og með 15. október n.k. og vorannar til og með 15. febrúar n.k.

Frekari upplýsingar um jöfnunarstyrk má finna á síðu Menntasjóðs námsmanna hér

Hægt er að sækja um jöfnunarstyrkinn með því að velja "Mitt lán" efst til hægri á vefsíðu Menntasjóðs námsmanna.