42 nýnemar komu saman í VA í gær, miðvikudaginn 19. ágúst, og tóku þátt í vel heppnuðum nýnemadegi.
Dagurinn hófst í matsal skólans þar sem Birgir skólameistari bauð nemendur velkomna og setti skólaárið 2026–2027 formlega. Nemendum var síðan skipt í hópa með umsjónarkennurum sínum og farið um húsakynni skólans, auk þess sem farið var yfir ýmis hagnýt atriði sem tengjast skólasamfélaginu.
Lilja Tekla félagslífsfulltrúi og Katrín Birna forvarnarfulltrúi sáu um leiki og sprell á útisvæðinu, þar sem meðal annars var spilaður kubbur, yatzy, slönguspil og krikket. Hóparnir enduðu á bingói til að kynnast betur. Í hádeginu grillaði Jói húsvörður pylsur fyrir mannskapinn.
Eftir hádegi fengu nýnemar kynningu á tölvukerfum og námskerfum skólans, skólasóknarreglum og nemendaþjónustu.
Kennsla hófst í morgun samkvæmt stundatöflum og er starfsfólk VA spennt fyrir nýju skólaári. Við hlökkum til komandi annar og góðs og gefandi skólastarfs þar sem gleði, samvinna og virðing verða í fyrirrúmi.