12 nemendur VA ljúka sveinsprófi í húsasmíði

Um sjómannadagshelgina fór fram sveinspróf í húsasmíði í húsakynnum Verkmenntaskólans. 12 nemendur þreyttu prófið og hafa þau öll sótt nám sitt í skólanum. Öll luku þau prófinu með glæsibrag og hafa því lokið sveinsprófi í iðninni. 

Við óskum þeim öllum hjartanlega til hamingju!

Á myndinni með má sjá frá vinstri: Alex Loga Georgsson, Tý Kresfelder Haraldsson, Jóhann Þóri Hafþórsson, Kacper Bartosz Idzikowski, Andrés Þorsteinsson, Kára Kresfelder Haraldsson, Jónas Orra Wilhelmsson, Kristinn Viktor Helgason, Andra Austmann Guðmundsson og Valgeir Jökul Brynjarsson. 

Á myndina vantar þær Barböru Valerie Kresfelder og Helgu Svanhvíti Þrastardóttur.