Fyrr í dag fór fram brautskráning frá Verkmenntaskóla Austurlands í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði. Brautskráningin var með hefðbundnu sniði og var salurinn þétt setinn af gestum en athöfninni var einnig streymt á youtube rás skólans. Alls brautskráðust 60 nemendur af 11 námsbrautum en það er lýsandi fyrir hið fjölbreytta námsframboð skólans sem er með mesta móti þetta skólaárið.
Athöfninni stýrði Guðný Björg Guðlaugsdóttir áfangastjóri og komu nemendur að auki að virkum hætti að dagskránni. Athöfnin var frjálsleg og fjölbreytt og var hátíðleikinn í fyrirrúmi.
Birgir Jónsson, skólameistari VA byrjaði athöfnina á ræðu þar sem hann kom víða við en hann var að útskrifa sína fyrstu nemendur eftir að hafa tekið við starfi skólameistara í nóvember s.l. Ræðan hans Birgis fjallaði um skólasamfélagið í VA og vitnaði hann m.a. í orð úr góðu ljóði þar sem segir að „þið munuð aldrei ganga einsömul“ og beindi orðum sínum að því skólasamfélagi sem VA gegnir enda sé þar um persónulega þjónustu að ræða og utanumhald gott. Þetta á bæði við meðal dagskólanema þar sem nándin við starfsfólk og aðra sem VA tilheyra er vissulega mikil en að auki þá eigi þeir 400 nemendur skólans sem stunda nám í fjar, dreif- og helgarnámi sömu sögu að segja. Hann kom einnig inn á það fjölbreytta nám sem er í boði í VA og minntist á að skólinn sé eini verkmenntaskólinn á svæðinu frá Akureyri að Selfossi og því sé gríðarlega mikilvægt að þróa námsframboð í takt við samfélagið og þarfir þess. Í dag útskrifuðust margir nemendur úr iðnmeistaranámi sem hófu nám í janúar 2024 en námið var einmitt sett af stað til að svara þeirri eftirspurn sem var eftir slíku námi. Nú í haust er svo stefnt að því að hefja kennslu í skipstjórn og nefndi Birgir það mikilvæga hlutverk skólans að vera stöðugt á tánum varðandi framboð og eftirspurn á því námi sem þörf er á í samfélaginu. Nú eru margir nemendur að útskrifast sem fóru óhefðbundnar leiðir í áfangavali á sinni skólagöngu en vegna þess fjölbreytta náms sem í boði er hafa nemendur kost á því að taka fög sem nýtast þeim á breiðari vettvangi og að lífsseiga mýtan um að það sé nauðsynlegt að klára stúdentinn fyrst og fara svo í verknám sé loksins á undanhaldi þar sem aukin aðsókn nemenda er í verklegar greinar og fjölmargir nemendur sem taki viðbótarnám til stúdentsprófs samhliða.
Þórður Vilberg Guðmundsson flutti ávarp fyrir hönd skólanefndar VA en hann útskrifaðist einmitt af félagsfræðibraut við VA árið 2006. Þórður ítrekaði mikilvægi skólans í samfélaginu og það lykilhlutverk sem VA gegnir í þeirri miklu uppbyggingu sem verið hefur í samfélaginu í Fjarðabyggð, og á Austurlandi öllu og kom meðal annars inn á íslensku menntaverðlaunin sem VA hlaut í nóvember s.l. í flokknum „framúrskarandi iðn- eða verkmenntun“ fyrir samstarfsverkefni við grunnskólana í Fjarðabyggð sem miðar að því að auka tækifæri nemenda í 9.-10. Bekk grunnskóla til að kynnast fjölbreyttum iðn- og tæknigreinum.
Tvær ræður voru fluttar af nemendum, en þær Ágústa Vala Viðarsdóttir og Rebekka Rán Hjálmarsdóttir útskriftarnemar af opinni stúdentsbraut fóru yfir skólagöngu sína og það þroskaferli sem þær hafa gengið í gegnum frá því að þær hófu framhaldsskólagöngu sína í sinni heimabyggð fyrir þremur árum síðan. Örvar Elí Sigtryggsson útskriftarnemi í húsasmíði hélt einnig ræðu þar sem hann kom inn á skólagöngu sína og ræddi meðal annars að nám og skil á verkefnum hafi ekki endilega verið línulegt ferli en lærdómurinn þeim mun meiri og að námið hafi ekki eingöngu átt sér stað í skólabókunum. „Það er engin ein leið, heldur bara þín leið“ sagði Örvar við lok útskriftarræðu sinnar sem voru góð skilaboð í salinn.
Gunnar Ólafsson flutti ávarp fyrir hönd starfsfólks eins og venjan er við brautskráningu. Það var við hæfi að Gunnar héldi ávarp dagsins en skólaárið sem nú er á enda er hans síðasta í kennslu við skólann en hann hefur starfað í VA frá árinu 1997. Gunnar hefur séð og upplifað mikið í kennslu yfir þau 28 ár sem hann hefur unnið við skólann og ákvað að nýta sér aðstoð gervigreindarinnar við ræðuhöld dagsins og höfðu áheyrendur í sal gaman af en eins og Gunnar nefndi í ræðu sinni þá er gervigreindin sem eitt sinn var vísindaskáldskapur nú orðin raunverulegur hluti af okkar lífi.
Útskriftarnemarnir Jakob Kristjánsson og Benedikt Arnfinnsson sáu um tónlistarflutning dagsins en þeir fluttu tvö lög með hljómsveitinni The Shadows, lagið Sleepwalks og lagið Apache. En Jakob spilaði einnig á flygil við lokalag athafnarinnar en samkvæmt hefð var lagið Sumarkveðja flutt og tóku gestir hraustlega undir og sungu með. Að formlegri dagskrá lokinni bauð skólinn gestum í kaffi og konfekt og að því loknu fóru útskriftarnemar einn af öðrum með fjölskyldum sínum og aðstandendum.
Að venju voru veittar viðurkenningar til nemenda sem hafa skarað fram úr í námi og starfi skólans. Eftirfarandi nemendur hlutu viðurkenningar í dag.
Anna Bialobrzeska, Bentína Ósk Gylfadóttir og Katrín Lea Hjálmarsdóttir hlutu verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur í sjúkraliðagreinum.
Ágústa Vala Viðarsdóttir hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur á stúdentsprófi, verðlaun fyrir framúrskarandi árangur í sögu og viðurkenningu fyrir þátttöku í félagsstörfum þar sem hún var meðal annars í Gettu betur liði skólans öll þrjú námsárin sín. Að auki hlaut Ágústa Vala menntaverðlaun Háskóla Íslands.
Benedikt Arnfinnsson hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur í faggreinum húsasmíði ásamt því að fá viðurkenningu fyrir þátttöku í leiksýningu á vegum leikfélags skólans.
Ólafur Kristinn Kristínarson hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur í rafvirkjun.
Patrekur Aron Grétarsson hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur á stúdentsprófi auk þess að fá raungreinaverðlaun Háskólans í Reykjavík.
Sædís Þórhallsdóttir hlaut verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur á þjónustubraut stuðningsfulltrúa.
Tómas Elí Vilhelmsson fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í félagsstörfum á vegum skólans.
Rebekka Rán Hjálmarsdóttir fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í félagsstörfum á vegum skólans.
Nadia Aleksandra Pacak fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í félagsstörfum á vegum skólans.
Jakob Kristjánsson fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í leiksýningu á vegum leikfélags skólans.
Arndís Lilja Geirsdóttir fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í félagsstörfum á vegum skólans.
Örvar Elí Sigtryggsson fékk viðurkenningu fyrir þátttöku í félagsstörfum á vegum skólans.
Ár hvert gefur Sjúkraliðafélag Austurlands sjúkraliðum í hópi brautskráningarnema lykil og rós frá félaginu. Í ár brautskráðust 9 nemendur úr sjúkraliðanámi og fengu þau lykil og rós ásamt því að vera boðin velkomin í hóp sjúkraliða.
Starfsfólk Verkmenntaskóla Austurlands óskar nemendum og fjölskyldum þeirra til hamingju með áfangann.