Afreks- og hvatningarsjóður stúdenta HÍ

Upplestur á frétt.

Í ár verður úthlutað í þrettánda sinn styrkjum úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands til framhaldsskólanema sem ná afburðaárangri á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Frá upphafi hafa átt í 300 nýnemar við Háskólann hlotið styrki úr sjóðnum. Styrkirnir eru nú að fjárhæð 300.000 kr. hver auk 75.000 kr. til endurgreiðslu á skrásetningargjaldi við Háskóla Íslands.

Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á að styrkja þá nemendur sem sækja um kennaranám eða annað nám í menntavísindum og eins þá nemendur sem hafa íslensku sem annað mál.
Við val á styrkhöfum er tekið mið af:

  • framúrskarandi námsárangri á stúdentsprófi
  • virkni í félagsstörfum
  • árangri nemenda á öðrum sviðum, s.s. í listum og íþróttum
  • sérstökum framförum í námi eða góðum námsárangri þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Umsóknarfrestur er til og með 15. júní. Nánari upplýsingar má finna með því að smella hér.