Afsláttur af skólabókum hjá IÐNÚ

VA er einn af aðildarskólum og fær þess vegna þetta góða tilboð. Tilboðið gildir bæði í verslun IÐNÚ, Brautarholti 8 og í vefverslun. Í tilefni af 70 ára afmæli IÐNÚ er sendingarkostnaður felldur tímabundið niður af öllum pöntunum í gegnum vefverslun (idnu.is). 

Að þessu sinni gildir afslátturinn og niðurfellingin á sendingarkostnaðnum 15. ágúst - 5. september n.k. Ef verslað er í Brautarholti 8 þá er nóg að framvísa auglýsingunni sem er hér með sem mynd. Ef verslað er á www.idnu.is þá þarf að slá inn afsláttarkóðann: haust2019 inn í reitinn ,,Nýta afsláttarmiða“.