Afsláttur af skólabókum hjá IÐNÚ

VA er einn af aðildarskólum og fær þess vegna þetta góða tilboð. Tilboðið gildir bæði í verslun IÐNÚ, Brautarholti 8 og í vefverslun. Sendingarkostnaður er felldur tímabundið niður af öllum pöntunum í gegnum vefverslun fyrir 10.000 krónur eða meira(idnu.is).

Að þessu sinni gildir afslátturinn og niðurfellingin á sendingarkostnaðnum 4. janúar - 21. janúar. Ef verslað er í Brautarholti 8 þá er nóg að gefa upp tengingu sína við skólann. Ef verslað er á www.idnu.is þá þarf að slá inn afsláttarkóðann: vor2022 inn í reitinn ,,Nýta afsláttarmiða“.

Við hvetjum alla til að nýta sér þetta tilboð!