Aukið aðgengi að heimasíðu VA

Í vikunni var sett upp vefþula á heimasíðu skólans í samstarfi við Blindrafélagið. Með henni verður heimasíðan og allt efnið sem á henni er aðgengilegra fyrir stærri hóp fólks. 

Vefþula er talgervill sem breytir texta í tal. Á öllum síðum birtist nú „hlusta“-hnappur og þegar smellt er á hann hefst upplestur á efni síðunnar. Samtímis lýsast upp orð og setningar sem lesnar eru hverju sinni. Stuðningur af þessu tagi hentar stórum hópi fólks og má þar nefna blinda og sjónskerta, lesblinda, aldraða, fólk sem er að læra tungumálið og fólk með annars konar prentleturshamlanir.