Bleikur dagur

Á miðvikudaginn í síðustu viku var bleikur dagur. Dagurinn er til þess að sýna konum sem hafa greinst með krabbamein og aðstandendum þeirra stuðning, hvetja til umræðu og vekja athygli á baráttunni gegn krabbameini. Í tilefni dagsins voru nemendur og starfsfólk hvatt til að klæðast bleiku og nemendafélagið bauð upp á bleikar vöfflur.