Brautskráning 24. maí

Brautskráning frá VA vorið 2025 verður í Tónlistarmiðstöð Austurlands á Eskifirði laugardaginn 24. maí kl. 14:00. 

Bjóðum útskriftarnemendum og fjölskyldum þeirra hjartanlega velkomin á athöfnina og eiga góða stund saman. 

Líkt og síðustu ár verður brautskráningunni einnig streymt í beinni útsendingu á youtube rás skólans.

Við hvetjum þau sem verða ekki viðstödd athöfnina að fylgjast með brautskráningunni heima í stofu.