Dreifnám í vélvirkjun/vélstjórn

Verkmenntaskóli Austurlands áætlar að hefja kennslu í vélvirkjun og vélstjórn í dreifnámi á haustönn 2026 ef næg þátttaka fæst. Umsóknarfrestur er til 15. júní 2026.

Dreifnámið er blanda af fjarnámi og staðnámi. Fagbóklegir hlutar námsins eru í fjarnámi og verklegir hlutar sem krefjast veru í smiðjum skólans eru kenndir í vinnustofum. Fyrir vikið er breytilegt eftir áföngum hvort og þá hversu mikið kennarar eru til taks í vinnustofum.

Smiðjur skólans eru opnar utan hefðbundins dagvinnutíma til að koma til móts við einstaklinga í dagvinnu sem vilja stunda nám með vinnu. Einnig gefst nemendum kostur á að sækja tíma með dagskólanum þegar það hentar, þá í samráði við kennara hvers áfanga.

Gjaldskrá dreifnáms má finna hér

Hér má finna námsbraut í vélvirkjun

Hér má finna námsbraut í vélstjórn

Hér skráir þú þig í námið