VA hlýtur Grænfána í fimmta sinn

Í gær fór fram úttekt á Grænfánaverkefninu en VA hefur tekið þátt í verkefninu í rúm 10 ár, eða frá árinu 2015 þegar hugmyndin vaknaði. Úttektin gekk afar vel og seinna sama dag kom Guðrún Schmidt, fulltrúi Landverndar, og afhenti skólanum Grænfána í fimmta sinn. Fulltrúar nemenda í umhverfisnefnd og nemendur úr sérstökum umhverfisáfanga sem er orðinn skylda á stúdentsbrautum í skólanum tóku við fánanum ásamt Gerði Guðmundsdóttur kennara og umhverfisfulltrúa og Sunnu Björgu kennara sem situr í umhverfisnefnd.

Í lokin var nemendum og starfsfólki boðið upp á köku í tilefni af þessum stóra áfanga.

Við erum afar stolt af umhverfisstarfinu okkar sem hefur skotið föstum rótum innan skólans og órjúfanlegur þáttur skólastarfsins.