Erasmus+ verkefni á Ítalíu

Verkefnið er hluti af samstarfsverkefni við skóla í Ungverjalandi, Noregi, Slóveníu, Ítalíu og Króatíu. Hist er í hverju landi einu sinni og nú er komið að Ítalíu.

Á Ítalíu munu nemendur stunda jafningjafræðslu. Jafningjafræðsla er mjög hvetjandi þar sem það felur í sér gagnkvæmt traust á milli jafningja sem skiptast ekki aðeins á þekkingu heldur einnig skoðunum og gerðum. Jafningjar verða sem fyrirmyndir fyrir hvern annan.

Verkefnið gefur nemendum tækifæri á að kynnast öðrum tungumálum, samfélögum og bæta samskiptahæfni sína.

Umsækjendur eru beðnir um að senda tölvupóst með umsókn sinni á birgir@va.is. Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum 28. ágúst.

Frekari upplýsingar um verkefnin sem eru í gangi skólanum má finna með því að smella hér.