Erasmus+ WILL to MotivatE(U)

Verkmenntaskóli Austurlands er þátttakandi í Erasmus+ 2 ára verkefni sem heitir WILL to MotivatE(U) ásamt skólum í Ítalíu, Noregi, Slóveníu, Króatíu og Ungverjalandi. Verkefnið snýr að efla áhugahvöt nemenda og starfsfólks með ýmsum hætti. Farið verður til allra þátttökulanda en í sumum ferðum verður aðeins starfsfólk og öðrum starfsfólk og nemendur saman.

Fjórir starfsmenn VA eru um þessar mundir staddir í Odda í Harðangursfirði í Noregi. Fókus ferðarinnar er hvernig hægt er að koma í veg fyrir kulnun í skólastarfi og leiðir til að meta kennslu og nám. Í ferðinni, sem er í fimm daga, fá starfsmennirnir líka tækifæri til að kynnast starfi Odda Videregående skole sem er verkmenntaskóli bæjarins og nánasta umhverfis.