Erlent samstarf hefur sett svip sinn á skólastarfið undanfarnar vikur en við í VA höfum verið afar virk í slíku starfi með stuðningi frá Erasmus+ áætluninni.
Í apríl héldu þær Hrefna Ágústa, Jóhanna Dagrún og Hafrún Katla til Króatíu þar sem þær heimsóttu skóla í Čakovec ásamt Asiu, enskukennara. Þær dvöldu þar í fimm daga og kynntu sér starfsemi Gospodarska škola frá mánudegi til föstudags. Auk þess ferðuðust þær um nærumhverfið en Čakovec er staðsett í norðurhluta Króatíu. Ferðinni lauk svo með frjálsum tíma í höfuðborginni Zagreb þar sem stúlkurnar kynntu sér borgina og króatíska menningu.
Viku síðar héldu þær Anna Margrét og Díana Ósk til Þýskalands þar sem þær heimsóttu Bonaventura Gymnasium í Dillingen sem staðsett er við Dóná. Skólinn hefur undanfarin ár sent nokkra skiptinema til okkar í VA, bæði til lengri og skemmri dvalar, og hefur samstarfið verið afar gott.
Í byrjun maí fengum við síðan til okkar níu gesti frá Ítalíu, nánar tiltekið frá Cagliari á eyjunni Sardiníu á Suður-Ítalíu. Hópurinn samanstóð af sjö nemendum og tveimur kennurum. Um var að ræða samstarfsverkefni þar sem við tókum á móti gestunum í eina viku og gistu allir nemendurnir hjá nemendum úr VA. Í september munu okkar nemendur síðan endurgjalda heimsóknina og heimsækja Sardiníu.
Þátttaka í alþjóðlegu samstarfi er ómetanleg reynsla fyrir nemendur okkar. Slík verkefni fela í sér fjölmörg tækifæri til vaxtar og þroska, meðal annars með því að stíga út fyrir þægindarammann, spreyta sig á erlendu tungumáli og kynnast nýju fólki og menningu. Þá er einnig dýrmætt að fá tækifæri til að spegla eigið skólastarf í starfi skóla í öðrum löndum og bera saman reynslu og upplifun.
Allir nemendur VA sem hafa áhuga á erlendu samstarfi geta leitað á skrifstofu skólans og fengið þar nánari upplýsingar.