Frábærar viðtökur á Þrek og tár

Nú er sýningartímabili leiksýningarinnar Þrek og tár lokið sem Leikfélagið Dúpið í VA setti upp í samstarfi við Leikfélag Norðfjarðar, en alls voru 5 sýningar sýndar nú í mars við góðar undirtektir áhorfenda. Þrek og tár er eftir Ólaf Hauk Símonarson en leikstjóri sýningarinnar var Árni Grétar Jóhannsson.

Verkefnið var metnaðarfullt í alla staði og voru fjölmargir sem komu að uppsetningu sýningarinnar, bæði á sviði og bak við tjöldin, og lögðu sitt af mörkum til að gera hana að eftirminnilegri upplifun.

Verkmenntaskóli Austurlands vill koma á framfæri innilegum þökkum til allra þeirra sem tóku þátt í sýningunni, hvort sem það voru nemendur, starfsfólk eða aðrir sem lögðu hönd á plóg.

Jafnframt vill skólinn þakka þeim fyrirtækjum og aðilum sem styrktu verkefnið og gerðu uppsetninguna mögulega. Það eru SÚN, Fjarðabyggð, Síldarvinnslan, Egersund, Rubix, PAN-Multitask, Nestak, ÍS-travel, GG þjónusta og síðast en ekki síst Bandalag íslenskra leikfélaga.

Samstarf og stuðningur sem þessi skiptir miklu máli og gerir skólasamfélaginu kleift að halda áfram að bjóða upp á metnaðarfull og skapandi verkefni sem efla nemendur bæði faglega og persónulega.

Verkmenntaskóli Austurlands þakkar öllum kærlega fyrir og hlakkar til næstu verkefna.

Hér eru myndir sem teknar voru af Þórfríði Soffíu Þórarinsdóttur ásamt leikskrá sýningarinnar sem lesa má með því að smella hér.