Fyrsta vikan í Szeged - Erasmus+

Írena Fönn og Jónas Orri, Erasmus+ fararnir okkar í Ungverjalandi, una sátt við sitt í Szeged. Þar er hugsað vel um þau af henni Ágnesi, sem er tengiliður VA í Szeged. Fyrstu dagana var Anna, myndlistakennari  í VA í för með þeim, en hún var í nokkurra daga skólaheimsókn til að kynnast starfi kollega í Ungverjalandi.

Þrenningin notaði fyrsta daginn sem var sunnudagur í að skoða sig um, læra á sporvagnakerfið og kynnast stórkostlegum kökubakstri Ungverjanna.

Jónas fór strax á fyrsta degi í vinnustaðanám en hann er að læra húsasmíði. Írena, sem er að læra hársnyrtiiðn, var fyrsta daginn í skólanum hjá leiðbeinandanum sínum henni Klöru. Í gegnum Klöru komst Írena í tengsl við ungverskan nemanda sem er að læra snyrtifræði og stefnir á skiptinám á Íslandi á næsta ári. Írena fór svo í vinnustaðanám á öðrum degi.

Þau Jónas, Írena og Anna voru svo heppin að þessa fyrstu viku var haldin landskeppni iðngreina- og starfsgreina í Búdapest sem er sambærilegt við Íslandsmót iðn- og starfsgreina sem haldið var í Reykjavík síðastliðna helgi. Tengiliðir VA í skólanum í Szeged buðu þeim með sér til Búdapest á keppnina sem var mikil upplifun. Anna hélt svo heim til Íslands en þau Jónas og Írena héldu aftur til Szeged. Það sem eftir var vinnuvikunnar voru þau svo áfram í vinnustaðanáminu.

Í frítíma sínum hafa þau ýmislegt brallað þessa fyrstu daga. Þau eru búin að skoða sig mikið um, fara á markaði, smakka stórar ungverskar pylsur og upplifa menninguna og mannlífið.