Haustganga

Á morgun, fimmtudaginn 8. sept, förum við í okkar árlegu haustgöngu. Farið verður með rútu upp í Oddsdal og gengið upp í Op.

Dagskrá:

8:30 – 9:50 Kennt samkvæmt stundaskrá

10:10 Nemendur mæta fyrir utan skólann og bíða eftir rútu.

12:30/13 Grillaðar pylsur í boði VA í Oddsdal, þegar göngugarpar koma niður.

13:30/14 Áætluð heimkoma

Mikilvægt er að göngufólk sé í góðum skóbúnaði og klæði sig samkvæmt veðri. Gott er að hafa drykki og smá nesti til að njóta á leiðinni.

Tekið verður manntal í göngunni, þeir nemendur sem ekki taka þátt fá fjarvist í kennslustundum dagsins.

Reiknað er með að allir nemendur og starfsfólk fari í gönguna og því verður ekki hádegismatur í mötuneyti skólans.