Haustganga VA

Á miðvikudaginn fór fram árleg haustganga VA og heppnaðist hún afar vel. Veðrið lék við göngufólk og stemmningin var frábær.

Hópurinn lagði af stað frá bílastæðinu á Fagradal og gekk upp á Grænafell eftir stikaðri leið. Á leiðinni var gengið fram hjá Grænafellsvatni áður en toppnum var náð. Þaðan var síðan haldið niður í Reyðarfjörð. Þegar niður var komið beið svo pylsuveisla sem vakti mikla lukku eftir góða göngu.

Nemendur og starfsfólk nutu útiverunnar, góða veðursins og samverunnar, og ekki skemmdi fyrir að útsýnið var stórkostlegt.

Takk fyrir frábæran dag og skemmtilega samveru.