Jafnréttisvika VA 2022

Í næstu viku 7.-14. febrúar er jafnréttisvika VA. Á myndinni má sjá dagskrá vikunnar á uppbroti og viðburðum. Þetta er í fyrsta sinn sem jafnréttisvika í þessari mynd er haldin og mikilvægt er að nemendur mæti vel og sýni áhuga því málefnið er mikilvægt og afar kærkomið að hafa uppbrot á hefðbundnu skólastarfi. Skyldumæting er fyrir nemendur á viðburði á mánudag, þriðjudag og fimmtudag en þátttaka í viðburðum á miðvikudag og föstudag er valfrjáls. Að öðru leyti er hefðbundið skólastarf í þessari viku og stundatöflur gilda.

Gleðilega jafnréttisviku!