Jöfnunarstyrkur

Opnað hefur verið fyrir umsóknir jöfnunarstyrks fyrir námsárið 2022-2023 og eru nemendur hvattir til að sækja um strax fyrir báðar annir námsársins. Umsóknarfrestur haustannar er til og með 15. október n.k. og vorannar til og með 15. febrúar n.k.

Sótt er um á MITT LÁN og ISLAND.is með rafrænum skilríkjum.

Frekari upplýsingar má finna á menntasjodur.is