Kærleiksdagar 17. og 18. mars

Kærleiksdagar VA verða haldnir dagana 17. og 18. mars en dagarnir eru orðnir að föstum sess í skólastarfinu. Á þessum dögum hugum við að okkur sjálfum, hvernig við getum sýnt hvert öðru og sjálfum okkur kærleika. Viðfangsefni daganna er því kærleikur í víðu samhengi og nemendur og starfsfólk munu brjóta upp hefðbundið skólastarf og njóta þess að vera saman.

Undirbúningur daganna var í höndum nefndar sem samanstóð af stjórnendum skólans og nemendum. Dagskránna má sjá á meðfylgjandi mynd.