Hér er gleðin við völd á hraðstefnumóti nemenda í sal skólans
Kærleiksdagar VA voru haldnir dagana 17. og 18. mars og má með sanni segja að vel hafi tekist til – kærleikurinn var allsráðandi en dagarnir eru orðnir fastur liður í skólastarfinu þar sem nemendur og starfsfólk stíga út fyrir kennslustofuna, njóta samveru og efla jákvæð samskipti.
Dagskráin var skipulögð af fjórum galvöskum nemendum í samstarfi við stjórnendur. Fyrri dagurinn fór fram í VA þar sem byrjað var á hafragraut áður en nemendur tóku þátt í spurningakeppni um starfsfólk skólans og svokölluðu hraðstefnumóti, þar sem þeir fengu tækifæri til að kynnast betur. Í framhaldinu völdu nemendur sér tvær vinnustofur en í boði var meðal annars píla, jóga, myndlist, borðtennis, „minute to win it“, borðspilið Partners og heimsókn í hárdeildina.
Eftir hádegi tóku nemendur og starfsfólk þátt í VA-leikum þar sem tíu lið leystu fjölbreyttar þrautir víðs vegar um bæinn. Verkefnin voru bæði skemmtileg og krefjandi; meðal annars að framkvæma góðverk, rista brauð, taka mynd með eldri borgurum og versla mat fyrir nákvæmlega 1.000 krónur. Allt var þetta leyst með bros á vör og í anda kærleiksdaganna.
Seinni dagurinn hófst í Fjarðarbyggðarhöllinni þar sem nemendur gátu spreytt sig á búbblubolta og leikjum með nerf-byssum. Að því loknu var haldið til Egilsstaða þar sem nemendur og starfsfólk snæddu pizzu á Askur Pizzeria áður en deginum lauk með afslöppun og notalegheitum í Vök.
Viljum við þakka nemendum okkar og starfsfólki kærlega fyrir þátttökuna á Kærleiksdögunum og vonum að allir hafi fundið eitthvað við sitt hæfi, spjallað við nýtt fólk og átt góðar stundir.
Meðfylgjandi eru myndir frá Kærleiksdögunum 2026.