Kynning lokaverkefna 2019

Lokaverkefni er áfangi sem nemendur á stúdentsbrautum taka á síðustu önn sinni við skólann. Hægt er að útfæra verkefnin á ýmsan hátt og vinna nemendur til dæmis að ritgerðum, rannsóknum, stuttmyndum, tónlistarverki, vefsíðum o.fl. Byggt er á sjálfstæðum og fræðilegum vinnubrögðum. Undir lok annar kynna nemendur verkefni sín.