Nægjusamur nóvember

Nóvember er einn neysluríkasti mánuður ársins með sínum svarta föstudegi, netmánudegi og degi einhleypra.

Landvernd og Grænfáninn standa að hvatningarátakinu „Nægjusamur nóvember“ og er það hugsað sem mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um að okkur vanti stöðugt eitthvað.

Í nóvember ætlum við í VA að tileinka okkur nægjusemi og hvetjum sem flest til að vera með.

Umhverfisnefnd VA mun minna á átakið á samfélagsmiðlum skólans. Seinnipartinn í nóvember er svo stefnt að því að hafa saumadag í skólanum þar sem að endurnýta á textíl og sauma jólagjafapoka úr gömlum jóladúkum og jólagardínum.

Á heimasíðu Landverndar má sjá nánar um hvatningarátakið. https://landvernd.is/naegjusamur-nov-2025/

Þar koma inn upplýsingar um viðburði, greinaskrif, fræðslu, verkefni fyrir vinnustaði og skóla o.fl.