Námsframboð haustannar er nú opið á heimasíðu VA og má finna hér en nú hefur verið opnað fyrir umsóknir í dagskóla fyrir alla eldri nemendur (2009 árgangur og eldri). Umsóknafresturinn er til og með 26. maí n.k. Umsóknir í dreif- og fjarnám á haustönn 2026 opna þann 1. apríl n.k.
Í vikunni fer fram val fyrir haustönn og má sjá skipulag áfangavals á myndinni hér til hliðar. Athugið að þessar dagsetningar eiga eingöngu við um nemendur sem eru nú þegar nemendur skólans og jafngildir val fyrir haustönn 2026 skráningu í skólann.
Sérstök athygli er vakin á einstaklega skemmtilegum valáföngum sem standa nemendum okkar til boða en það eru m.a. byrjunaráfangi í forritun, fjármálalæsi daglegs lífs, leikfangasmíði, enskur vísindaorðaforði og síðast en ekki síst áfanginn VEVI1MF03 sem er undirbúningur fyrir Mín Framtíð - Íslandsmótið í iðngreinum sem fram fer í mars 2027 í Laugardalshöll.