Námsmatssýning 17. desember

Á morgun, föstudaginn 17. desember er námsmatssýning í skólanum. Einkunnir birtast nemendum í Innu kl. 8:15 og námsmatssýningin fer fram á milli kl. 12 og 13. Á námsmatssýningunni eiga nemendur þess kost að skoða námsmat sitt í viðurvist kennara og fá útskýringar. 

Við hvetjum alla nemendur til þess að láta sjá sig.

Kennararnir verða í ákveðnum stofum og má sjá skipulagið á myndinni með fréttinni og einnig með því að smella hér.