Námsmatssýning 17. maí

Miðvikudaginn 17. maí er námsmatssýning í skólanum. Einkunnir birtast nemendum í Innu að morgni og námsmatssýningin fer fram á milli kl. 11:30 og 12:30 í matsalnum. Á námsmatssýningunni eiga nemendur þess kost að skoða námsmat sitt í viðurvist kennara og fá útskýringar.

Við hvetjum alla nemendur til þess að láta sjá sig.