Námsmatssýning 19. desember

Föstudaginn 19. desember er námsmatssýning í skólanum. Einkunnir birtast nemendum í Innu kl. 8:00 og fer námsmatssýningin fram milli kl. 11:30 - 12:30. Á námsmatssýningunni eiga nemendur þess kost að skoða sundurliðað námsmat sitt í viðurvist kennara og fá útskýringar. Kennarar eru í stofum samkvæmt skipulaginu sem fylgir hér með.

Við hvetjum alla nemendur til þess að láta sjá sig.