Nemendur á flakki í erlendu samstarfi

Hér má sjá þá Arnar, Pálma og Viktor í skólanum í Uppsala
Hér má sjá þá Arnar, Pálma og Viktor í skólanum í Uppsala
Það hefur verið nóg um að vera hjá nemendum okkar í erlendu samstarfi síðastliðnar vikur með styrkjum frá Erasmus+ áætluninni.
Þeir Viktor Óli, Arnar og Pálmi nemendur í rafvirkjun héldu til Svíþjóðar þann 1. febrúar s.l. þar sem þeir heimsóttu verkmenntaskóla í Uppsala, Uppsala Yrkegymnasium í Jälla. Þar tóku þeir þátt í skólastarfi hjá samnemendum sínum í rafvirkjanámi í 4 daga ásamt því að fá innlit í áhugaverðar kennslustundir sem kenndar eru við skólann s.s. við dýravörslu.
Strákarnir dvöldu í gistingu í miðbæ Uppsala og eyddu svo síðasta degi heimsóknarinnar í Stokkhólmi þar sem þeir fengu að sjá og upplifa höfuðborg Svíþjóðar.
 
Viku síðar fóru þrír nemar úr vélstjórnarnámi þeir Finnur Örn, Magnús Ari og Júlíus Laxdal ásamt Hildi Dröfn kennara í rafiðngreinum til Ítalíu og kynna sér vélstjórnarnám við skólann IIS Roncalli sem staðsettur er í Poggibonsi. Flogið var til Mílanó og einn dagur tekinn í miðbæ borgarinnar áður en haldið var með lest til Poggibonsi en við í VA höfum átt gott samstarf við skólann þar síðastliðin ár. Hápunkti ferðarinnar var eflaust náð þegar farið var í dagsferð til Modena og Maranello þar sem höfuðstöðvar Ferrari fyrirtækisins eru staðsettar og tvö Ferrari söfn heimsótt Museo Ferrari sem staðsett er í Maranello og Museo Casa Enzo Ferrari sem staðsett er í Modena. 
 

Ferðir sem þessar eru ómetanleg reynsla fyrir nemendur okkar. Þær gefa þeim tækifæri til að kynnast nýjum aðferðum í námi og spegla reynslu sína saman við jafnaldra erlendis auk þess sem þær veita nemendum tækifæri til að kynnast nýjum löndum og menningu með því að stíga út fyrir þægindarammann og standa á eigin fótum.

Allir nemendur VA sem hafa áhuga á erlendu samstarfi geta leitað á skrifstofu skólans og fengið þar nánari upplýsingar.