Öll skólastig í Neskaupstað sameinuðust í Styrkleikunum

Í gær, mánudaginn 14. september, tóku öll skólastig í Neskaupstað sig saman og tóku þátt í Styrkleikunum. Styrkleikarnir eru viðburður á vegum Krabbameinsfélagsins þar sem stuðningi við fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur þess er sýndur í verki.

Nemendur frá Leikskólanum Eyrarvöllum, Nesskóla og Verkmenntaskóla Austurlands tóku þátt í viðburðinum sem fór fram á SÚN-vellinum. Styrkleikarnir eru haldnir víða um land en þetta var í fyrsta skipti í sögu þeirra sem öll skólastig í Neskaupstað sameinuðust með þessum hætti. Rúmlega 340 börn, ungmenni og starfsfólk tóku þátt og mynduðu eina stóra samheldna heild.

Sett var upp boðhlaup með blönduðum liðum og í lokin mynduðu þátttakendur stórt hjarta á vellinum sem táknaði samstöðuna sem einkenndi daginn. Okkur öllum til mikillar gleði birtist sólin einmitt þegar hjartað var myndað.

Þegar einhver veikist getur oft verið erfitt að finna réttu orðin eða vita hvernig best sé að sýna stuðning. Setningar á borð við „Ég vildi bara að ég gæti gert eitthvað“ heyrast oft þegar einhver sem okkur þykir vænt um veikist. Þátttaka í viðburði eins og Styrkleikunum er falleg og áhrifarík leið til að sýna stuðning, samkennd og samstöðu.

Við í VA þökkum Eyrarvöllum og Nesskóla fyrir að taka þátt með okkur án þess að hika. Við viljum einnig þakka Hlyni Sveinssyni fyrir myndatökuna og frábæra samsetningu á myndbandinu frá viðburðinum sem sjá má hér, Sigurjóni Egilssyni fyrir að sjá um skjámyndina og Höskuldi Björgólfssyni fyrir að sjá um tæknimál og tónlist.

Að lokum þökkum við öllum börnum, ungmennum og starfsfólki sem tóku þátt og gerðu daginn ógleymanlegan.

Fyrir hönd VA
Kata
Forvarnarfulltrúi Verkmenntaskóla Austurlands