Opnir dagar lukkuðust vel

Opnir dagar fóru fram í síðustu viku og í þetta sinn fléttuðust dagarnir saman við Fardaga sem eru samstarfsverkefni nokkurra framhaldsskóla. Nemendur í þessum skólum gátu því farið á milli skóla og valið sér námskeið. Nokkrir nemendur í VA nýttu sér þennan möguleika og heimsóttu aðra skóla í síðustu viku og einnig fengum við til okkar gesti úr öðrum framhaldsskólum. 

Eftirfarandi námskeið voru í boði á Opnum dögum; matreiðsla, Artattack, tónlist, Fab Lab, kvikmyndir, hár, snyrting og förðun, heilsa og lífstíll, Morfís og Gettu betur.

Hér má sjá myndir frá Opnum dögum.