Próftækni- og prófkvíðanámskeið

Eigið þið það til að vera kvíðin fyrir próf, þannig að það hefur áhrif á undirbúninginn og sjálfa próftökuna? Viljið þið læra að skipuleggja próflesturinn betur og ná betri árangri í prófum? Kíkið þá á próftækni – og prófkvíðanámskeið. Lærið að hafa stjórn á kvíðanum, breyta hugsunarhættinum og skipuleggja ykkur í prófaundirbúningnum.

Námskeiðið verður miðvikudaginn 28. nóvember kl 12:30 – 13:30 í stofu 1.

Skráning fer fram hjá Sigrúnu ritara eða Hildi Ýri námsráðgjafa fyrir mánudaginn 26. nóvember.