Sækir þú nám fjarri lögheimili?

Opið fyrir umsóknir um jöfnunarstyrk hjá Menntasjóði (áður LÍN). Jöfnunarstyrkur (áður dreifbýlisstyrkur) er námsstyrkur fyrir nemendur sem stunda nám á framhaldsskólastigi fjarri lögheimili og fjölskyldu

Styrkurinn skiptist í akstursstyrk og dvalarstyrk.

Akstursstyrkur – er ætlaður þeim nemendum sem sækja skólann frá lögheimili þ.e. keyra daglega í skólann frá lögheimili sínu. Einnig er hann fyrir þá sem búa ekki í foreldrahúsum en geta ekki sýnt fram á leigugreiðslur.

Dvalarstyrkur –  er fyrir þá nemendur sem flytja a.m.k. 30 km frá lögheimili sínu og fjölskyldu til að geta stundað nám þ.e. þeir sem eru á heimavist og/eða greiða leigu. 

Kynnið ykkur málið hér.

Hægt er að sækja um með því að smella hér.