Samstarf um iðn- og starfsnám milli VA og FAS

Starfsþróunardagur starfsfólks í framhaldsskólum var haldinn síðasta föstudag á höfuðborgarsvæðinu. Starfsfólk dreifðist eftir greinum á allflesta framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu og áttu góða og gagnlega fundi.

Stjórnendur í framhaldsskólum hittust í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ. Líkt og aðrir hlýddu þeir á fyrirlestra. Að því loknu hittust skólameistarar framhaldsskólanna á landsbyggðinni sérstaklega og ræddu um samstarf litlu skólanna en það samstarf gengur undir nafninu Samland.

Á haustdögum voru Austfirsku ólympíuleikarnir haldnir í FAS. Þar reyndu nemendur með sér í alls kyns þrautum en starfsfólk fundaði um stöðuna og starfsþróun í skólunum. Upp úr samtalinu varð til hugmynd að samkomulagi á milli VA og FAS um samstarf í iðnnámi. Á fundinum á föstudag undirrituðu skólameistarar VA og FAS samkomulag þar sem markmiðið er að; efla verk- og starfsnám í héraðinu, efla faglegt samstarf og vinna að sameiginlegum hagsmunum og efla samvinnu milla skólanna. Samkomulagið nær til kennslu á húsasmíðabraut við VA og kennslu á leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrautum við VA. Samstarfið byggir á hugmyndafræði Samlandsins sem er samstarfsvettvangur framhaldsskólanna á landsbyggðinni.

Samkvæmt samningunum verða almennar bóklegar greinar kenndar í FAS en fagbóklegar greinar verða að hluta kenndar í FAS og í fjarnámi með stuðningi frá kennurum í FAS. Næsta haust mun kennsla í húsasmíði hefjast samkvæmt samkomulaginu. Það eru þrír áfangar í húsasmíði á fyrsta ári samkvæmt námskrá og verður grunnáfanginn, TRÉS1VÁ05 alveg kenndur í FAS. Hina tvo áfangana taka nemendur í lotum og fara þá í VA og dvelja þar í nokkra daga. Enn er verið að móta samstarfið um leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabraut og munum við segja frá því síðar.

Við í FAS erum afar ánægð með væntanlegt samstarf og sjáum að það gæti jafnvel náð til fleiri starfsgreina á næstu árum.

Meðfylgjandi mynd sýnir þá Birgi Jónsson og Guðjón Ragnar Jónasson undirrita samstarfssaminginn síðasta föstudag.