Skólahaldi í VA aflýst á morgun, þriðjudaginn 28. mars

Ávörðun hefur verið tekin að fella skólahald niður í staðnámi í VA á morgun þriðjudag 28. mars, vegna óvissu um snjóflóðahættu og færð. Almannavarnir hafa ákveðið að fara af neyðarstigi niður á hættustig. Álag hefur verið mikið á nemendum og starfsfólki í dag og hugur okkar er hjá ykkur öllum.

Nám mun færast yfir á kennsluvef þar sem það á við og nemendur eru beðnir um að fylgjast með þar inni. Hluti af kennurum og starfsfólki hafa þurft að yfirgefa heimili sín og ekki allir með aðgang að vinnugögnum og tölvum, því eru ekki allir áfangar virkir inn á kennsluvef.

Bestu kveðjur Eydís og Birgir.