Skólastarf hefst að nýju

Nú styttist óðum í að skólastarf hefjist að nýju að loknu sumarleyfi. Búið er að opna skrifstofu skólans og er hún opin alla virka daga frá kl. 8 - 14.

Við hlökkum mikið til að hitta nemendur, nýja og gamla, þegar skóli hefst. Nýnemar, fæddir 2006, verða boðnir sérstaklega velkomnir á nýnemadegi föstudaginn 19. ágúst en skóli hefst síðan formlega mánudaginn 22. ágúst. Nemendur fá nánari upplýsingar um þetta allt saman þegar nær dregur.

Við hvetjum nemendur og forsjárfólk til þess að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna. Hægt er að hafa samband í síma 4771620 eða í tölvupósti á va@va.is.