Smáhýsi til sölu

Nemendur við smíðadeild VA hafa unnið að því að byggja smáhýsi á s.l. skólaári. Smáhýsið er nú auglýst til sölu og óskað eftir tilboðum í hýsið eigi síðar en kl. 12:00 föstudaginn 22. maí 2026. 

Allar nánari upplýsingar um húsið veitir Eyþór deildastjóri í húsasmíði eða Birgir skólameistari, hægt er að ná í báða í síma 477-1620 milli kl. 8 - 14.