Söngkeppni framhaldsskólanna

Laugardaginn 13. apríl fer fram Söngkeppni framhaldsskólanna í Bíóhöllinni á Akranesi. Sýnt verður frá keppninni í beinni á RÚV kl. 20:55. 

Fyrir hönd VA keppa þær María Bóel Guðmundsdóttir og Ísabella Danía Heimisdóttir. Þær ætla að flytja frumsamið lag eftir Maríu Bóel, ,,Ekki lengur hér".

Fyrirkomulag keppninnar er svipað og í fyrra, hver skóli fær tvær mínútur og þrjátíu sekúndur til að slá í gegn og er það í höndum dómnefndar og þjóðarinnar með símakosningu að segja til um sigurvegara.

Við hvetjum alla sem geta til að mæta - eða taka upp símann og kjósa!