Styttist í skólabyrjun

Nú styttist óðum í að skólastarf hefjist að nýju að loknu sumarleyfi. Búið er að opna skrifstofu skólans og er hún opin alla virka daga frá kl. 8 - 14.

Við hlökkum mikið til að hitta nemendur, nýja og gamla, þegar skóli hefst föstudaginn 18. ágúst með skólasetningu og verða nýnemar sérstaklega boðnir velkomnir. Kennsla hefst síðan samkvæmt stundatöflu mánudaginn 21. ágúst. Nemendur fá nánari upplýsingar um þetta allt saman þegar nær dregur.

Við hvetjum nemendur og forsjáraðila til þess að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna. Hægt er að hafa samband í síma 4771620 eða í tölvupósti á va@va.is.