Sveinspróf í byrjun árs 2022

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst:

Matreiðsla, framreiðsla, bakaraiðn og kjötiðn í janúar 2022 - Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2021.

Í byggingagreinum í janúar 2022 - Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2021

Í vélvirkjun í febrúar/mars 2022 - Umsóknarfrestur er til 15. desember 2021

Nánari dagsetningar verða birtar á vef IÐUNNAR fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir.

Með umsókn skal leggja fram afrit af námssamningi, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunnum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2021.

Umsóknareyðublöð má nálgast á idan.is og á skrifstofu IÐUNNAR