Tæknidagur fjölskyldunnar 18. apríl

Tæknidagur fjölskyldunnar verður haldinn í Verkmenntaskóla Austurlands laugardaginn 18. apríl.

Sem fyrr er dagurinn tileinkaður tækni, vísindum, nýsköpun og þróun á Austurlandi og er dagskráin sniðin að öllum aldurshópum. Þetta er í ellefta sinn sem Tæknidagurinn er haldinn.

Nú sem áður verður margt um að vera á Tæknideginum og ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi í dagskránni. Fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar sýna starfsemi sína og lögð er áhersla á að gestir sjái hvernig tækni- og vísindaþekking nýtist fyrirtækjum í alls konar starfsgreinum. Einnig mun VA bjóða gestum og gangandi í kaffi í tilefni af 40 ára afmæli skólans.

Viðburðir verða í þremur byggingum: Í íþróttahúsinu í Neskaupstað og í verknáms- og bóknámshúsum VA.

Siglingahermirinn verður á sínum stað þar sem gestir og gangandi geta siglt um heimsins höf. Hægt verður að prófa suðuhermi í málmiðndeildinni, iðntölvustýringar í rafiðndeildinni og skoða smáhýsi sem er í byggingu í tréiðndeildinni. Háriðndeildin verður sýnileg og hægt verður að fá sér fléttur. Jafnréttisnefnd VA mun bjóða gestum að kynna sér SjúkaÁst. Slökkvilið Fjarðabyggðar mun leyfa gestum að slökkva eld í sýndarveruleika, fara í reykköfun og sýna að auki slökkviliðs- og sjúkrabíl. HSA verður með heilsufarstékk og nemendur í ásamt því að hægt verður að kynna sér ýmsar iðngreinar og möguleika sem nám í þeim færir.

Vísindasmiðja HÍ verður á staðnum með ýmiskonar þrautir og uppgötvanir fyrir alla fjölskylduna, Lalli töframaður verður með sýninguna Nýjustu töfrar og vísindi ásamt því að spjalla við gesti og gangandi, Stjörnu-Sævar verður á staðnum og kennir okkur allt um sólmyrkvann sem verður þann 12. ágúst, Atlas Primer, íslensk EdTech fyrirtæki, sem var tilnefnt eitt af fremstu menntatæknifyrirtækjum í heimi árið 2024 af TIME sýnir okkur samtalsþjálfun með gervigreind og Alexander 10 ára gamall drengur mun sína hvernig hann forritar og nýtir gervigreind til þess að smíða lausn til að halda utan um Pokemonspil.

RU Racing sem er nemendateymi við HR sýnir formúlubíl sem þau hafa hannað og smíðað frá grunni, það verður hægt að sauma fjölnotapoka úr afgangsefnum hjá umhverfisnefnd VA, vinna með alls konar tæknibúnað hjá Tölvuhvíslaranum og fá fræðslu um gjörunnin matvæli hjá doktorsnemanum Steinu Gunnarsdóttur sem útskrifaðist frá VA.

Ýmis fyrirtæki og stofnanir munu auk þess kynna starfsemi sína og má þar nefna Síldarvinnsluna, Alcoa, Veðurstofuna, Matís, Austurbý, Fjarðabyggð, Securitas, Rarik, Kaldvík, Nestak, Landsvirkjun og Launafl.

Hér má sjá lista yfir þau atriði sem verða með okkur á Tæknidaginn www.taeknidagur.is

Það er Verkmenntaskóli Austurlands sem stendur að Tæknideginum og nýtur til þess stuðnings frá Alcoa, SÚN, Landsvirkjun, Fjarðabyggð og Sparisjóði Austurlands. Dagskráin hefst kl. 12 og lýkur kl. 16. Við hlökkum til að eiga góðan dag með gestum okkar.