Hér má sjá Þór ásamt Asiu enskukennara við móttöku verðlaunanna þann 9. febrúar s.l.
Þór Theodórsson hlaut í vikunni verðlaun í smásagnakeppni félags enskukennara á Íslandi (FEKÍ). Verðlaunaafhendingin var haldin í Veröld - húsi Vigdísar í Reykjavík en athöfnin var haldin í samstarfi við Breska sendirráðið og Vigdísarstofu. Það var sendiherra Bretlands á Íslandi Dr. Bryony Nathew sem afhenti verðlaunin.
Þór hlaut þriðju verðlaun í flokki framhaldsskóla en lykilorð smásagnarkeppninnar nú í ár var "EPIPHANY" en saga Þórs sem ber heitið My sun fjallar um dreng sem elst upp á heimili þar sem þögn og refsingar móta tilveru hans og hann lærir að vera ósýnilegur. Þegar drengurinn kynnist svo Cameron opnast honum nýr heimur þar sem hann áttar sig á að uppeldi hans var ekki eðlilegt og upplifir um leið djúpa vitundarvakningu. Í þeirri uppljómun finnur hann frelsi, ást og öðlast nýja sín á eigið virði.
Við óskum Þór innilega til hamingju með 3. sætið.