Uppgjör v/mötuneytis

Upplestur á frétt.

Þessa dagana er verið að vinna í uppgjöri mötuneytis en hluti nemenda á heimavist og í mataráskrift er búinn að ofgreiða fyrir mötuneyti vegna skólalokunar.

Sigurborg, fjármálastjóri VA, sendi í dag öllum þeim nemendum sem hafa ofgreitt tölvupóst og óskaði eftir reikningsupplýsingum svo hægt væri að endurgreiða. Ef einhver telur sig eiga inni en fékk ekki póst er viðkomandi beðinn um að senda tölvupóst til sigurborg@va.is.

Eitthvað var um að nemendur væru í skuld við mötuneytið þegar lokað var. Eins og fram kom í fréttabréfi sem sent var fyrir páska þá voru ógreiddir reikningar felldir niður og í heimabanka birtust nýir reikningar sem búið var að endurskoða með tilliti til skólalokunar.