Nú styttist óðum í að skólastarf hefjist að nýju að loknu sumarleyfi. Búið er að opna skrifstofu skólans og er hún opin alla virka daga frá kl. 9 - 12 fram að skólabyrjun en þá lengist opnunartími skrifstofu til kl. 14:00.
Við hlökkum mikið til að hitta nemendur þegar skóli hefst miðvikudaginn 19. ágúst með skólasetningu og nýnemadaegi þar sem nýnemar verða sérstaklega boðnir velkomnir. Nýnemar fá tölvupóst með upplýsingum um nýnemadaginn ásamt því að þeir nemendur sem verða á heimavistinni í vetur fá upplýsingar um opnun heimavistar o.fl. í tölvupósti.
Kennsla hefst síðan samkvæmt stundatöflu fimmtudaginn 20. ágúst.
Hér má finna skóladagatal fyrir skólaárið 2026-2027
Við hvetjum nemendur og forsjáraðila til þess að hafa samband við okkur ef einhverjar spurningar vakna. Hægt er að hafa samband í síma 4771620 á opnunartíma skrifstofu eða í tölvupósti á va@va.is