Upphaf vorannar 2026

Stundaskrár og upphaf vorannar

  • Opnað verður fyrir stundaskrár í Innu mánudaginn 22. desember.
  • Dagskólinn hefst þriðjudaginn 6. janúar samkvæmt stundaskrá. Sama dag kl. 13:25 mæta allir nemendur á fund í matsalnum. Á fundinum verður farið yfir nýjar skólasóknarreglur. Kennsla í fjarnámi hefst sama dag. Vinnustofur í dagskóla hefjast miðvikudaginn 7. janúar.
  • Vinnustofur í dreifnámi hefjast þriðjudaginn 13. janúar. Sjá skipulag vinnustofa hér.
  • Fyrsta lota í helgarnámi í húsasmíði hefst hjá 2. önn 16. janúar en hjá 5. önn 10. apríl. Hér má sjá loturnar.
  • Upplýsingar um meistaranám er hægt að finna hér.
  • Námsgagnalista má finna í Innu og hér.

Heimavist

Opnunartími skrifstofu

  • Skrifstofa skólans verður lokuð frá og með mánudeginum 22. desember vegna jólaleyfa.
  • Skrifstofan verður opnuð að loknu jólaleyfi mánudaginn 5. janúar kl. 10:00.
  • Ef erindið er brýnt er hægt að senda tölvupóst á skólameistara, birgir@va.is